Gekk með Skotum í dag. Upp Laugaveginn. Álpaðist einhvernveginn inn í hóp karlmanna klæddum köflóttum pilsum. Svo vildi til að ég var í köflóttum kjól. Passaði vel inn í myndina.Gæti alveg eins hafa átt heima þarna. Nema að undir Skotanna pilsum var töluvert meira bitastætt en undir köflótta H&M kjólnum mínum.
Núna hlusta ég á skoskuna inn um gluggann minn og finnst ég vera í Skotlandi. Hef heyrt töluvert meira af skoskunni undanfarna þrjá daga en íslensku. Hressandi.
En núna fer ég að hugsa. Hvernig væri það ef ákveðin þjóð væri þekkt fyrir það að konur þeirrar þjóðar gengu naktar undir þjóðbúningnum? Ætli þær urðu beðnar - bóngóðar - um að sýna undir pilsið í fjölmiðlum? Sjáðið þið fyrir ykkur blindfullar (eða bara bláedrú) konur flassandi píkunni út um allar trissur þegar landsleikur þjóðarinnar er í gangi? En af hverju er það svona mikið meira tabú? Af hverju eru kynfæri og rass kvenna svona mikið heilagri en karla? Svarið mér nú!